|
Ytra-Áland er í Þistilfirði, milli Þórshafnar og Raufarhafnar. Þaðan er fallegt útsýni og sólarlagið oft einkar fallegt. Góðar gönguleiðir eru í nágrenninu t.d. er merkt leið á Rauðanesi og á Óttarshnjúk. Kvöldganga með ströndinni eða fjöruferð nýtur jafnan vinsælda hjá dvalargestum. Góð staðsetning til skoðunarferða um Þingeyjarsýslur. Áhugaverðir staðir eru m.a. Langanes, Melrakkaslétta, Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Mývatn. Næsta þéttbýli / sundlaug: Þórshöfn u.þ.b. 15 mín akstur.
Afþreying: Skoðunarferðir um nágrennið með leiðsögn, hestaleiga og veiðileyfi eru seld í ám og vötnum
Gisting í Svalbarðsskóla
Yfir sumarið bjóðum við einnig upp á gistingu í Svalbarðsskóla og veitingar fyrir hópa. Panta þarf með fyrirvara í s.4681290 ytra-aland@ytra-aland.is
Hentug aðstaða fyrir hópa s.s. ættarmót .
Rúmgóður veitingasalur.
Góð útiaðstaða fyrir börnin s.s. rólur vegasölt og fl
>> Göngukort |